Útitröppur, svalir, breyting inni
Básendi 5 01.82.420.3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Málsaðilar
Þröstur Guðmundsson
Byggingarfulltrúi nr. 894
4. október, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta aðalinngangi og útitröppum og loka rými undir tröppum, ásamt því að gera svalir á suðurhlið með tröppum niður í garð við einbýlishúsið á lóð nr. 5 við Básenda. Ennfremur er sótt um leyfi til að breyta burðarveggjum innandyra. Erindi var grenndarkynnt frá 10. ágúst til og með 7. september 2016. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir, dags. 11. ágúst 2016. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á fundi skipulagsfulltrúa 9. september 2016 og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. september 2016.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. júlí 2016 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. júlí 2016.
Stækkun A-rými 7,7 ferm., 16,4 rúmm.
Erindi fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 14. júní 2016.
Gjald kr. 10.100
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108400 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006896