Spónsogsbúnaður á baklóð
Síðumúli 17 01.29.320.5
Síðast Frestað á fundi fyrir 7 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 907
17. janúar, 2017
Frestað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi fyrir áður uppsettri spónasugu og safngámi á norðanverðri lóð nr. 17 við Síðumúla.
Erindi var grenndarkynnt frá 15. september til og með 13. október 2016.
Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Ólafur Þór Gylfason framkvæmdastjóri f.h. Markaðs- og miðlarannsókna ehf., dags. 16. september 2016, Ólafur Stefán Sveinsson f.h. Nafir ehf. og Hávík ehf., dags. 29. september 2016, og Halldóra Hreggviðsdóttir f.h. Púpu ehf. og Þorgeir Björnsson f.h. Fjörtíu og sex ehf., dags. 29. september 2016.
Erindi fylgir umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur ásamt hljóðvistarmælingu dags. 9. desember 2016, umsögn skipulagsfulltrúa um grenndarkynningu dags. 4. janúar 2017 og ljósmyndir af spónasugu.
Einnig útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. júní 2016, umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. júní 2016 og bréf frá húsfélagsfundi ódagsett.
Gjald kr. 10.100 + 10.100
Svar

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 4. janúar 2017.

108 Reykjavík
Landnúmer: 103812 → skrá.is
Hnitnúmer: 10015197