Breyting á núverandi húsi - viðbygging stækkun
Eirhöfði 2-4 04.03.010.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 882
5. júlí, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta núverandi límtréshúsi og byggja við það stálgrindarhús til að koma fyrir hjólbarðaverkstæði og koma fyrir millilofti í suðvesturhorni sem nota á undir skrifstofur hússins á lóð nr. 2 til 4 við Eirhöfða.
Stækkun við byggingu mhl. 01: 1.172,7 ferm., 6.628,1 rúmm. B rými 8,5 ferm. Olíu- og sandskilja mhl.02 stærð 4,2 ferm., 12,5 rúmm.
Gjald kr. 10.100
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.