Hótel - Endurbygging og stækkun
Skipholt 1 01.24.120.6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 914
7. mars, 2017
Frestað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja 4. hæð ofaná og 5. hæð yfir hluta húss, sameina í einn matshluta og innrétta gististað í flokki IV, teg. hótel, með 84 herbergjum fyrir 170 gesti í verslunar- og skrifstofuhúsi á lóð nr. 1 við Skipholt.
Erindi var grenndarkynnt frá 4. október til og með 1. nóvember 2016. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Rúnar Björgvinsson dags. 8. október 2016, Gísli Jónsson f.h. PK arkitektar ehf., dags. 17. október 2016, Vilma Kinderyte, dags. 22. október 2016, Jóhanna Cortes Andrésdóttir, Theodóra Thoroddsen, Drífa Nadía Mechiat og Mark Anthony Rodriguez, dags. 28. október 2016, Unnur Egilsdóttir og Þorsteinn Þorsteinsson, dags. 30. október 2016, Gísli Guðni Hall hrl., frá Mörkinni lögmannsstofu f.h. 37 íbúða ehf. , dags. 31. október 2016 og Nína Kristjánsdóttir, dags. 31. október 2016.
Erindi fylgir bréf hönnuða, greinargerð um ábyrgðarsvið hönnuða dags. 10. maí 2016, brunahönnunn frá EFLU síðast uppfærð í september 2016, greinargerð I vegna hljóðvistar dags. í maí 2016 og greinargerð frá Lotu um burðarvirkishönnun ódagsett.
Einnig útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 19. ágúst 2016 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. ágúst 2016.
Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. febrúar 2017.
Stækkun: 540,2 ferm., 2.095 rúmm.
Eftir stækkun, A-rými: 3.478,4 ferm., 10.809,8 rúmm.
B-rými: 121,3 ferm., 856,4 rúmm.
C-rými: 156,1 ferm.
Gjald kr. 10.100
Svar

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103024 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016919