Breyta kvisti, framlengja þak
Akurgerði 39 01.81.320.3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Málsaðilar
Jónas Heimisson
Ólafur Hrafn Nielsen
Byggingarfulltrúi nr. 892
20. september, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að lengja og breikka kvist á norðurhlið, til að breikka áður samþykkt sólskýli um 1,3 metra og um leyfi til að breyta þaki bílskúrs við parhús á lóð nr. 39 við Akurgerði.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 13. maí 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. maí 2016.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. september 2016 fylgir erindinu. Erindi var grenndarkynnt frá 15. ágúst til og með 12. september 2016. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun húss nr. 39: 6,1 ferm., 12,4 rúmm.
Gjald kr. 10.100
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 107890 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006433