Stækka lyftu, hringstigi o.fl.
Stigahlíð 45-47 01.71.210.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 877
31. maí, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að stækka vörulyftu milli hæða og láta hana þjóna kjallara einnig, setja hringstiga milli 1. hæðar og kjallara í húsnæði Bakarameistarans, endurinnrétta geymslu- og starfsmannaaðstöðu í suðurhluta hússins/kjallara, endurinnrétta skrifstofur í norðurhluta 2. hæðar og setja svalir á verslanakjarnann Suðurver á lóð nr. 45-47 við Stigahlíð.
Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 18. mars 2016. Erindi var grenndarkynnt frá 12. apríl til og með 10. maí 2016. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Mörkin lögmannsstofa hf. Ragnar Halldór Hall, hlr. f.h. íbúa að Stigahlíð 43, dags. 9. maí 2016. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 20. maí 2016.
Meðfylgjandi er brunahönnunarskýrsla Verkís dags. feb. 2016, samþykki Hárgreiðslustofu Sólveigar og Bakarameistarans fylgir. Málið var grenndarkynnt frá 12.4. 2016 - 10.5. 2016, ein athugasemd barst frá eigendum húss á lóð nr. 43 við Stigahlíð.
Gjald kr. 10.100
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

105 Reykjavík
Landnúmer: 107208 → skrá.is
Hnitnúmer: 10000657