Stækka kjallara - breyting inni
Ármúli 3 01.26.120.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 871
19. apríl, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja við kjallara, fjarlægja fordyri á norðurhlið, breyta innra skipulagi, innrétta mötuneyti og starfsmannarými í kjallara, breyta fyrirkomulagi snyrtinga og innrétta skrifstofur á 5. hæð, breyta útliti bakbyggingar með nýjum gluggum og klæðningu og endurnýja glugga og gluggakerfi á öllum hæðum mhl. 01, verslunar- og skrifstofuhúsi á lóð nr. 3 við Ármúla.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 3. mars 2016, bréf hönnuðar dags. 16. febrúar 2016.
Stækkun: 109,3 ferm., 792,3 rúmm.
Gjald kr. 10.100
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 103506 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006713