Ofanábygging - framhús / nýbygging baklóð
Laugavegur 56 01.17.311.2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 860
26. janúar, 2016
Frestað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja ofan á núverandi framhús ásamt því að reisa nýbyggingu á baklóð fyrir gistiheimili í flokki II, gestafjöldi 32 og fjórir starfsmenn, sbr. fyrirspurn BN050029 sem svarað var neitandi 20.10. 2015 fyrir hús á lóð nr. 56 við Laugaveg.
Jafnframt er erindi BN048949 fellt úr gildi.
Stækkun: xx ferm., xx rúmm.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. janúar 2016 fylgir erindinu ásamt endurskoðaðri umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. janúar 2016.
Meðfylgjandi er bréf lögfræðings dags. 26. nóvember 2015.
Gjald kr. 9.823
Svar

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og til umsagnar skipulagfulltrúa frá 22. janúar 2016.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101529 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017577