Skrifstofu- og verslunarhús
Norðlingabraut 8 04.73.230.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 853
1. desember, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja verslunar -, skrifstofu- og lagerhús á tveimur hæðum að hluta staðsteypt og að hluta úr stálgrindarvirki á lóð nr. 8 við Norðlingabraut.
Orkurammi dags. 1. nóvember 2015 og umsögn Brunahönnuðar dags. 6. nóv. 2015 fylgir erindi.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 20. nóvember 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. nóvember 2015.
Stærð: 2.737,2 ferm., 15.757,8 rúmm.
Gjald kr. 9.823
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

110 Reykjavík
Landnúmer: 204834 → skrá.is
Hnitnúmer: 10112635