Verslun - kjallara
Óðinsgata 8B 01.18.030.7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Málsaðilar
Dagur B Eggertsson
Byggingarfulltrúi nr. 853
1. desember, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta íbúðarhúsnæði í smávöruverslun með matvæli og útbúa nýjan inngang á vesturgafl sbr. fyrirspurn BN049818 (jákv.) í kjallara húss á lóð nr. 8b við Óðinsgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 13. nóvember 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. nóvember 2015.
Einnig bréf væntanlegs rekstraraðila dags. 27.10. 2015, bréf arkitekts dags. 4.11. 2015 þar sem farið er fram á undanþágu á kröfum um aðgengi fyrir alla í kjallara og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 26.11. 2015.
Gjald kr. 9.823
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101718 → skrá.is
Hnitnúmer: 10024353