Einbýlishús
Fossagata 2 01.63.670.7
Síðast Frestað á fundi fyrir 8 árum síðan.
Málsaðilar
Ágúst Ingimundarson
Byggingarfulltrúi nr. 867
15. mars, 2016
Frestað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt einbýlishús, kjallara, hæð og ris, einangrað að utan og klætt standandi borðaklæðningu á lóð nr. 2 við Fossagötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. október 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. október 2015. Einnig er lagt fram skuggavarp Arkþings í júní og september, ódags. og í ágúst, dags. 6. október 2015. Erindi var grenndarkynnt frá 24. nóvember til og með 22. desember 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Elín Brimdís Einarsdóttir og Gísli Kristinsson dags. 21,. desember 2015. Hrafnhildur Sigurðardóttir, dags. 21. desember 2015 og Hrafnhildur Sigurðardóttir f.h. 99 aðila á undirskriftarlista dags. 22. desember 2015. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 22. febrúar 2016.
Erindi fylgir útreikningur á varmatapi dags. 6. október 2015 og lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 21. apríl 2014.
Stærð A-rými: 216 ferm., 666,2 rúmm.
C-rými: 36,9 ferm.
Gjald kr. 9.823
Svar

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

102 Reykjavík
Landnúmer: 106733 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010596