Rampur - stoðveggur - sorpskýli
Hljómalindarreitur - Tengigangur
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 860
26. janúar, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja skábraut frá Smiðjustíg inná Hljómalindartorg, stoðveggi og sorpgeymslu sem mynda aðgengi að kjöllurum á Laugavegi 13 og 19 á Hljómalindarreit á Smiðjustíg 4.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 23. október 2015 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. október 2015 fylgja erindi ásamt heimild SEA fyrir afnot af borgarlandi og sorpskýli ódagsett..
Gjald kr. 9.823
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar samningur SEA og Þingvangs um afnot af borgarlandi fyrir sorpskýli verður þinglýst á lóðirnar.