Viðbygging/sólskáli
Langagerði 20 01.83.201.0
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Málsaðilar
Þorgeir Adamsson
Byggingarfulltrúi nr. 849
3. nóvember, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja sólskála með steyptum sökkli við húsið á lóð nr. 20 við Langagerði. Erindi BN048250 er dregið til baka með þessu erindi. Lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. ágúst 2015. Erindið var grenndarkynnt frá 3. september til og með 1. október 2015. Engar athugasemdir bárust.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 20. nóvember 2014 og bréf frá hönnuði dags. 28. ágúst 2015 fylgir erindi.
Stækkun: 5,18 ferm., 13,6 rúmm.
Gjald kr. 9.823
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108537 → skrá.is
Hnitnúmer: 10014949