Breytingar inni
Tryggvagata 13 01.11.740.7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 835
14. júlí, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN048982, m. a. hækkar gólfkóti 6. hæðar um 18cm., skábraut í bílakjallara styttist lítið eitt, komið er fyrir setlaugum á svölum 6. hæðar, í fjölbýlishúsi á lóð nr. 13 við Tryggvagötu.
Gjald kr. 9.823
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 222370 → skrá.is
Hnitnúmer: 10111852