Ofanábygging og ný íbúð
Mímisvegur 4 01.19.610.9
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Málsaðilar
Rögnvaldur Guðmundsson
Elín Valdís Þorsteinsdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 855
15. desember, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja 3. hæð og ris, innrétta nýja íbúð í risi, byggja svalir á suðurgafli 1. 2. 3. hæðar, gera nýjan inngang og innrétta íbúðarherbergi í kjallara tvíbýlishúss á lóð nr. 4 við Mímisveg.
Lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa v/fsp. um sama erindi dags. 5. mars 2014.
Einnig útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. október 2015 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. október 2015 og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 11. desember 2015 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. desember 2015.
Lagt er fram samþykki Bergljótar Halldórsdóttur, dags. 3. nóvember 2015.
Erindi var grenndarkynnt frá 6. nóvember til og með 4. desember 2015. Engar athugasemdir bárust. Greiða þarf bílastæðagjald vegna fjölgunar eigna.
Stækkun: 100,8 ferm., 241,8 rúmm.
Gjald kr. 9.823
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102650 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022499