bílageymsla, stoðveggur, kjallararými
Brekkugerði 4 01.80.440.4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Málsaðilar
Hjalti Gylfason
Byggingarfulltrúi nr. 849
3. nóvember, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja nýjan steinsteyptan bílskúr að vestanverðu, koma fyrir geymslukjallara undir verönd 0102 og steypa lágan stoðvegg á lóðamörkum nr. 6 og 8 við Brekkugerði á lóð nr. 4 við Brekkugerði.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. ágúst 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. ágúst 2015.
Erindið var grenndarkynnt frá 10. september til og með 8. október 2015. Engar athugasemdir bárust. Einnig lagt fram samþykki hluta hagsmunaðila mótt. 14. september 2015.
Bílaskúr stærð: 33,4 ferm., 84,9 rúmm.
Geymslukjallari: 36,3 ferm., 98,0 rúmm.
Gjald kr. 9.823 + 9.823
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 107752 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007813