Raðhús
Ísleifsgata 20-26 05.11.310.4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 835
14. júlí, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða, fjögurrra íbúða raðhús úr járnbentri steinsteypu á lóð nr. 20 - 26 við Ísleifsgötu.
Varmatapsútreikningar dags. 16. júní 2015 fylgir erindi.
Stærð hvers matshluta: 175,9 ferm., 558,5 rúmm.
Samtals: 703,6 ferm. 2.234 rúmm.
Gjald kr. 9.823
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

113 Reykjavík
Landnúmer: 214835 → skrá.is
Hnitnúmer: 10101683