Bílskúr o.fl.
Laugarásvegur 21 01.38.040.7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Málsaðilar
Tómas Már Sigurðsson
Byggingarfulltrúi nr. 873
3. maí, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta bílgeymslu og útigeymslu í suðausturhorni lóðar, sjá fsp. BN049420 frá 26. maí 2015, gera nýjan inngang á suðurhlið jarðhæðar, byggja nýja stoðveggi, koma fyrir setlaug, endurskipuleggja lóð og útbúa tvö ný bílastæði við einbýlishús á lóð nr. 21 við Laugarásveg. Grenndarkynning stóð frá 17. júlí 2015 til 14. ágúst 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Haraldur Bjarnason og Hanna Guðmundsdóttir, dags. 14. júlí 2015. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. september 2015.
Erindi fylgir samþykki lóðarhafa Laugarásvegar 15, 19 og 23 og lóðarhafa Kleifarvegar 12 og 14 áritað á uppdrætti.
Bílskúr 29,2 ferm., 87,4 rúmm.
Útigeymsla: 16,2 ferm.., 48,8 rúmm.
Gjald kr. 9.823
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.