Nýtt stálgrindarhús
Fossaleynir 8 02.46.720.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 834
7. júlí, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja stálgrindarhús sem verður mhl 02 sunnanvið núverandi byggingu mhl. 01 á lóð nr. 8 við Fossaleyni.
Bréf frá umsækjanda dags. 28. maí 2015 fylgir erindi.
Stærð viðbyggingar: 602,6 ferm., 4.780,5 rúmm.
Gjald kr. 9.823
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

112 Reykjavík
Landnúmer: 178762 → skrá.is
Hnitnúmer: 10075763