Bæta við svölum - 2.hæð
Bárugata 34 01.13.521.3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Málsaðilar
Sif Sumarliðadóttir
Byggingarfulltrúi nr. 835
14. júlí, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja svalir úr stáli timburklætt gólf, handrið verður stálgrind með lóðréttum pílárum á austurgafli 3. hæðar hússins á lóð nr. 34 við Bárugötu.
Grenndarkynning fór fram 1. til 29. júní 2015. Engar athugasemdir bárust.
Erindi fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa dags. 17. apríl 2015, umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. apríl 2015, útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 29. apríl 2015, samþykki meðeigenda dags. 1. apríl 2015 og jákvæð fyrirspurn BN047536.
Einnig útskrift úr gerðabók embætti skipulagsfulltrúa dags. 3. júlí 2015.
Gjald kr. 9.823
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100462 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006880