Kvistir, þakgluggar o.fl.
Fríkirkjuvegur 3 01.18.300.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 823
21. apríl, 2015
Frestað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja kvisti til austurs og vesturs, setja þakglugga, síkka kjallaraglugga til vesturs, endurbyggja tröppur og pall og setja dyr til suðurs og opna efri hæð undir þak, einangra og klæða þak og kvisti að innan og breyta skipulagi innanhúss lítillega, endurskipuleggja garð og girðing endurgerð að eldri fyrirmynd við hús á lóð nr. 3 við Fríkirkjuveg.
Meðfylgjandi er umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 8.4. 2015 og umsögn Borgarsögusafns dags. 14.4. 2015 með vísan í umsögn Borgarminjavarðar dags. 30.5. 2015.
Gjald kr. 9.823
Svar

Frestað.
Umsækjandi hafi samband við embætti byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101914 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010769