Viðbygging
Sjafnargata 3 01.19.601.2
Síðast Synjað á fundi fyrir 8 árum síðan.
Málsaðilar
Sigurbjörn Þorkelsson
Aðalheiður Magnúsdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 839
25. ágúst, 2015
Synjað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að reisa viðbyggingu norðan megin þannig að bílskúr er rifinn og útbúin er vinnustofa sem verður tengd kjallara hússins á lóð nr. 3 við Sjafnargötu.
Einnig er lagður fram tölvupóstur Rögnu Kristjánsdóttur dags. 5. júní 2015 þar sem óskað er eftir framlengingu á athugasemdarfresti vegna yfirstandandi grenndarkynningar. Jafnframt er lagt fram bréf Óskars Jónssonar dags. 10. maí 2015 þar sem tekið er jákvætt í nýjar framkvæmdir. Erindi var grenndarkynnt frá 11. maí til og með 15. júní 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Samtök íbúa við Sjafnargötu og Freyjugötu, samtals 29 aðilar mótt. 15. júní 2015. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. ágúst 2015.
Bréf frá hönnuði dags. 24. mars 2015 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 23. mars 2015 fylgja erindinu.
Niðurrif bílskúrs er: 18,2 ferm., 45,5 rúmm. Stærð viðbyggingar er: 54,5 ferm., 179,7 rúmm.
Gjald kr. 9.823
Svar

Synjað.
Samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. ágúst 2015.