Svalir - kvistur - skorsteinn o.fl.
Blómvallagata 11 01.16.234.0
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 836
28. júlí, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja svalir á austurhlið allra íbúða, koma fyrir eldvarnarhurðum milli stigahúss og íbúða, fjarlægja skorstein, byggja kvist á götuhlið og breyta innra skipulagi íbúðar á 4. hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 11 við Blómvallagötu.
Erindi fylgir greinargerð um ástandsskoðun húss frá verkfræðistofunni Eflu dags. í júlí 2013, allsherjarumboð frá eiganda íbúðar 0302 dags. 2. febrúar 2011, samþykki meðeigenda ódagsett og bréf hönnuðar dags. 27. maí 2015.
Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. maí 2015, umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2015 og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 17. júlí 2015.
Erindið var grenndarkynnt frá 11. júní til og með 9. júlí 2015. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 9.823
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101313 → skrá.is
Hnitnúmer: 10008302