Veitingastaður
Frakkastígur 26A 01.18.231.7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 9 árum síðan.
Málsaðilar
Hrefna Björk Sverrisdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 826
12. maí, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að stækka kvisti, stækka bíslag til norðurs, stækka glugga, einangra og klæða að utan með borðaklæðningu, breyta innra skipulagi og innrétta veitingahús í flokki II fyrir 48 gesti í húsi á lóð nr. 26A við Frakkastíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 6. mars 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. mars 2015 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 25. febrúar 2015.
Stækkun: 3,5 ferm., 21,8 rúmm.
Gjald kr. 9.823
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 215204 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010642