Ofanábygging - bakhús mhl.04. (ATH skoða fyrra erindi BN47616)
Laugavegur 1 01.17.101.6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 841
8. september, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja hæð ofan á bakhús sem er mhl. 04, og til að fjölga gistirýmum úr 4 í 8 í gististað í fl. IV, tegund b á lóð nr. 1 við Laugaveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 6. mars 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. mars 2015.
Einnig fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar og lagt fram álit Hjalta Steinþórssonar dags. 28. ágúst 2015.
Stækkun 109,5 ferm., 262 rúmm.
Samtals eftir stækkun 451,6 ferm., 1.382 rúmm.
Gjald kr. 9.823
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101361 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017495