Hækka þak - kvistir, svalir
Víðimelur 63 01.52.410.6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 836
28. júlí, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að hækka ris, byggja kvisti, koma fyrir nýjum stiga milli hæða, stækka svalir og breikka inngangströppur og útbúa nýjan inngang fyrir íbúðir 0101 og 0201 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 63 við Víðmel.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 13. mars 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. mars 2015 og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 26. júní 2015. Erindið var grenndarkynnt frá 22. maí til og með 19. júní 2015. Engar athugasemdir bárust.
Jákvæðar fyrirspurnir BN048310 dags. 14. október 2014 og BN048437 dags. 28. október 2014 fylgja erindinu, einnig samþykki meðlóðarhafa á A4 teikningum dags. 15 jan. 2015 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 6. júlí 2015.
Stækkun: 168,5 ferm., 523,6 rúmm.
Gjald kr. 9.823 + 9.823
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

107 Reykjavík
Landnúmer: 106021 → skrá.is
Hnitnúmer: 10014585