Viðbygging og gert grein fyrir áður gerðum kjallara
Drafnarstígur 5 01.13.421.4
Síðast Synjað á fundi fyrir 8 árum síðan.
Málsaðilar
Birgir Daníel Birgisson
Margrét Rut Eddudóttir
Byggingarfulltrúi nr. 860
26. janúar, 2016
Synjað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja garðskála úr timbri á steyptum sökkli, og gerð er grein fyrir kjallara undir einbýlishúsi á lóð nr. 5 við Drafnarstíg. Erindi var grenndarkynnt frá 24. nóvember til og með 22. desember 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Skúli Magnússon, mótt. 11. desember 2015, Philippe Urfalino, dags. 22. desember 2015 og Guðrún Kristinsdóttir, dags. 22. desember 2015. Einnig er lögð fram bréf Birgis Daníels Birgissonar, dags.11. og 12. janúar 2016. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. janúar 2016.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. desember 2014 fylgir erindinu. Einnig umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 5. maí 2014, samþykki eiganda, samþykki lóðarhafa Drafnarstígs 5A og Bræðraborgastígs 12 dags. 6. október 2015 og tölvupóstur frá umsækjanda dags. 22. október 2015 þar sem óskað er eftir að erindið verði grenndarkynnt.
Stækkun viðbygging: 11,3 ferm., 28,2 rúmm.
Stækkun vegna áður gerðs kjallara: 26,6 ferm. 53,2 rúmm.
Samtals: 37,9 ferm., 81,4 rúmm.
Gjald kr. 9.500 + 9.823
Svar

Synjað.
Með vísan til umsagnar skipulagfulltrúa dags. 19. janúar 2016.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100340 → skrá.is
Hnitnúmer: 10009205