Fjölbýlishús
Barónsstígur 28 01.19.031.4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 9 árum síðan.
Málsaðilar
Eyþór Ingi Kristinsson
Brynjar Kristinsson
Byggingarfulltrúi nr. 819
17. mars, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja fjölbýlishús úr steyptum samlokueiningum, fjórar hæðir og kjallara með átta íbúðum á lóð nr. 28 við Barónsstíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 3. október 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. október 2014 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 4. febrúar 2015.
Jafnframt er erindi BN047706 dregið til baka. Greiða skal fyrir 5 bílastæði í flokki II.
Stærð: Kjallari 84,7 ferm., 1., 2. og 3. hæð 81 ferm., 4. hæð 78,3 ferm.
Samtals: 406 ferm., 1.287 rúmm.
Gjald kr. 9.500
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102447 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006831