Viðbygging
Fjölnisvegur 3 01.19.621.4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 9 árum síðan.
Málsaðilar
Theódóra Gunnarsdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 800
28. október, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að rífa eldri viðbyggingu á bakhlið, byggja nýja á sama stað og til að breyta innra skipulagi í einbýlishúsi á lóð nr. 3 við Fjölnisveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. október 2014 fylgir erindinu. Erindið var grenndarkynnt frá 22. september til og með 20. október 2014. Engar athugasemdir bárust.
Viðbyggingar: 9 ferm., 29 rúmm.
Stækkun: 4,1 ferm., 17,2 rúmm.
Gjald kr. 9.500
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102666 → skrá.is
Hnitnúmer: 10009921