Takmarkað byggingarleyfi
Frakkastígur 8 01.17.210.9
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 9 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 792
2. september, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir:
1. Flutning á húsi nr. 58A við Hverfisgötu og nr. 41A við Laugaveg - nema heimild til niðurrifs á því húsi komi til frá Minjastofnun Íslands og Borgarsögusafni Reykjavíkur, enda liggi fyrir lóðir til flutnings á þeim.
2. Niðurrif á húsi nr. 58 við Hverfisgötu, ásamt skúrum að baki því.
3. Aðstöðusköpun á lóð fyrir framkvæmdum 1. og 2. áfanga samkvæmt fyrirliggjandi aðalteikningum, sem ekki hafa fengið endanlega afgreiðslu.
4. Upphaf jarðvegsframkvæmda fyrir 1. og 2. áfanga framkvæmda í samræmi við fyrirliggjandi aðalteikningar, sem ekki hafa fengið endanlega afgreiðslu, enda séu þær réttar hvað fyrirkomulag og stærðir áfanganna varðar.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuð umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.