Þvottahús
Klettháls 13 04.34.670.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 9 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 800
28. október, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að koma fyrir þvottahúsi í vesturenda núverandi húss, breytingarnar felast aðallega í að innrétta ketilhús og byggja við það skorstein, innrétta búningsaðstöðu, snyrtingar og kaffistofu, setja nýja vöruhurð og gönguhurð á NA-hlið hússins á lóð nr. 13 við Klettháls.
Meðfylgjandi er bréf framkvæmdastjóra Fannar dags. 5. september 2014 og brunahönnun Mannvits dags. 10. september 2014
Gjald kr. 9.500
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

110 Reykjavík
Landnúmer: 188543 → skrá.is
Hnitnúmer: 10073440