Viðbygging
Fáfnisnes 11 01.67.501.3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 9 árum síðan.
Málsaðilar
Kristjana Skúladóttir
Þórólfur Óskarsson
Byggingarfulltrúi nr. 791
26. ágúst, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu til suðurs, kjallara, 1. hæð og ris úr járnbentri steinsteypu, einangrað að utan með þéttull, koma fyrir þaksvölum á 1. hæð og kvist á norðurhlið tvíbýlishúss á lóð nr. 11 við Fáfnisnes.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 28. júlí 2014 fylgir.
Stækkun viðbyggingar: 94,1 ferm., 269,6 rúmm. Útskrift úr gerðabók skipulagsfulltrúa frá 25. júlí 2014 fylgir með erindinu.
Gjald kr. 9.500
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

102 Reykjavík
Landnúmer: 106894 → skrá.is
Hnitnúmer: 10009424