Lagertankar - breyting 1.og 2.hæð
Grjótháls 7-11 04.30.400.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 9 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 787
22. júlí, 2014
Frestað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að staðsetja við mhl. 01 fimm lagertanka við suðurhlið, fjölga sílóum úr tveimur í þrjú við norðurhlið breyta kynningaraðstöðu á 1. hæð í átöppunarsal fyrir bjór og flytja kynningaraðstöðu upp á 2. hæð og verður pallur fyrir framan stiga stækkaður í húsinu á lóð nr. 7-11 við Grjótháls.
Brunaskýrsla dags. 8. júlí 2014, umboð frá Hilmari Þór Kristinssyni þar sem hann veitir Gylfa Óskarssyni umboð til að undirrita öll skjöl er varðar byggingarleyfisumsókn fyrir 9-11 og bréf frá hönnuði dags. 15. júlí 2014 fylgir.
Stækkun á palli: XX ferm,.
Síló mhl. 06 10,2 ferm., 79,0 rúmm. Síló mhl. 07, 08, 09, 10 og 11 hver um sig 4,2 ferm., 15,3 rúmm. Samtals: 31,2 ferm., 155,5 rúmm.
Gjald kr. 9.500
Svar

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

110 Reykjavík
Landnúmer: 111019 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010868