Breytingar úti
Skipasund 43 01.35.820.5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 9 árum síðan.
Málsaðilar
Bryndís Guðnadóttir
Þór Marteinsson
Byggingarfulltrúi nr. 803
18. nóvember, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja svalir og stiga niður í garð, færa kofa á lóð, færa innkeyrslu og byggingarreit fyrir bílskúr við hús á lóð nr. 43 við Skipasund.
Meðfylgjandi er umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. september 2014. Erindið var grenndarkynnt 28. júlí til 25. ágúst 2014. Tvær athugasemdir bárust.
Gjald kr. 9.500 + 9.500
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

104 Reykjavík
Landnúmer: 104482 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016871