Breyta innra skipulagi á 5.hæð
Austurstræti 12A 01.14.040.8
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 9 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 790
19. ágúst, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi 5. hæðar þannig að lokað er fyrir stigaop, opnað er að hluta upp í þakrými, gluggar á hlið og þakgluggar endurnýjaðir og hæð á svalahandriði verður hækkuð með hertu gleri í húsinu á lóð nr. 12A við Austurstræti.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. ágúst 2014 fylgir erindinu.
Umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 9. júlí 2014 og tölvupóstur frá Borgarsögusafni Reykjavíkur dags. 28. júlí 2014 fylgja erindi.
Gjald kr. 9.500 + 9.500
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Þinglýsa skal kvöð á húsið á lóðinni nr. 14 við Austurstræti vegna aðkomu að 5. hæð hússins í húsinu á lóðinni nr. 12A við Austurstræti fyrir útgáfu byggingarleyfis.