Endurnýjun - BN029012
Smiðshöfði 1 04.06.110.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 9 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 803
18. nóvember, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að innrétta húsvarðaríbúð á 2. hæð (sjá BN029012 sem samþykkt var 4. maí 2004) og koma fyrir svölum á milli mhl. 02 og 01 og flóttasvölum á austurgafl á atvinnuhúsi á lóð nr. 1 við Smiðshöfða.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 27. júní 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. júní 2014. Einnig fylgir tölvupóstur frá hönnuði dags. 19. september þar sem gerð er grein fyrir svölum og aftur þar sem hún gerir grein fyrir flóttasvölum ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 14. nóvember 2014.
Gjald kr. 9.500 + 9.500
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

110 Reykjavík
Landnúmer: 110602 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018518