Endurnýjun - BN035456
Bragagata 26A 01.18.663.9
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Málsaðilar
Helgi Björnsson
Vilborg Halldórsdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 956
9. janúar, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja nýjar svalir á suðvesturgafli, koma fyrir þaksvölum og skjólgirðingu ofan á geymsluskúr og reisa skjólvegg á lóðamörkum við raðhús á lóðinni nr. 26A við Bragagötu.
Sjá erindi BN035456 sem samþykkt var 29. ágúst 2007. Erindi fylgir samþykki meðeiganda dags. 23. maí 2014 og samþykki nágranna á nr. 24 og 26 dags. 23. maí 2014.
Erindið var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Bragagötu 24, 26 og 28 Haðarstíg 2, 4, 6, og 10 frá 17. nóvember 2017 til og með 15. desember 2017. Engar athugasemdir bárust.
Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. janúar 2018.
Gjald kr 9.500
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102334 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007648