Stækkun íbúðarhúss, bifreiðargeymsla o.fl.
Gunnarsbraut 30 01.24.711.3
Síðast Synjað á fundi fyrir 9 árum síðan.
Málsaðilar
Ársæll Valfells
Helga Gerður Magnúsdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 811
20. janúar, 2015
Synjað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu úr steinsteypu, byggja tvennar svalir á suðvesturhlið, breyta innra skipulagi og breyta í tvíbýlishús, fjölbýlishúsi á lóð nr. 30 við Gunnarsbraut.
Meðfylgjandi er bréf umsækjanda dags. 1. apríl 2014, útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. maí 2014 ásamt umsögnum verkefnisstjóra dags. 28. apríl 2014 og umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 28. apríl 2014.
Meðfylgjandi er einnig bréf með útskrift úr gerðabók skipulagsfulltrúa dags. 5. maí 2014. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. október 2014. Einnig eru lagðir fram tölvupóstar Stefáns Boga Stefánssonar dags. 10. nóvember 2014, Huldu Sigfúsdóttur dags. 13. nóvember 2014 og Þóru Einarsdóttur og Björns Ingibergs Jónssonar dags. 18. nóvember 2014 þar sem ekki er gerð athugasemd við erindið. Jafnframt er lagður fram tölvupóstur Sjafnar Vilhelmsdóttur dags. 17. nóvember 2014 þar sem óskað er eftir framlengingu á athugasemdarfresti.
Erindið var grenndarkynnt frá 23. október til og með 4. desember 2014.
Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Inga Reynisdóttir dags. 26. nóvember 2014, Steinunn Kristjánsdóttir dags. 2. desember 2014, Ragnheiður Aradóttir og Kári Steinars Karlsson dags. 3. desember 2014, Hinrik Á. Bóason, Guðbjörg Á. Ingólfsdóttir, Sjöfn Vilhelmsdóttir og Ólöf Markúsdóttir dags. 3. desember 2014, húsfélagið Gunnarsbraut 28 dags. 4. desember 2014 og Sigbjörn Kjartansson dags. 3. desember 2014. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. janúar 2015.
Stækkun: 112,6 ferm., 345,6 rúmm.
Heildarstærð verður: 372,2 ferm., 1.099,9 rúmm.
Gjald kr. 9.500
Svar

Synjað.
Með vísan til afgreiðslu Umhverfis- og skipulagsráðs dags.14. janúar 2015 og umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 12. janúar 2015.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103345 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011070