Gistiheimili
Barónsstígur 5 01.15.441.2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 9 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 789
12. ágúst, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að byggja svalir á suðausturhlið og innrétta gistiheimili í rými 0201 á annarri hæð hússins á lóðinni nr. 5 við Barónsstíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. júlí 2014 fylgir erindinu. Grenndarkynning stóð frá 13. júní til 11. júlí 2014. Engar athugasemdir bárust.
Fyrirspurnarerindi sama efnis sem fékk jákvæða afgreiðslu byggingarfulltrúa þann 25. febrúar 2014 fylgir erindinu, einnig samþykki meðeigenda fyrir rekstri gistiheimilis og vegna byggingar svala fylgir erindinu.
Gjald kr. 9.500
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101139 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006815