Nýtt einbýlishús úr timbri
Njálsgata 33B 01.17.313.2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 10 árum síðan.
Málsaðilar
Unnur Guðjónsdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 775
15. apríl, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús úr timbri, hæð og ris með staðsteyptum kjallara á lóð nr. 33B við Njálsgötu.
Varmatapsútreikning dag. 10. mars 2014 fylgir ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. mars 2014 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. mars 2014. Umsögn Minjastofnun íslands dags. 24. mars 2014 og Minjasafns Reykjavíkur dags. 9. apríl 2014 fylgir.
Stærðir: kjallari: 19,5 ferm., 95,9 rúmm. 1.hæð: 45,3 ferm., 129,7 rúmm. Ris 49,4 ferm., 155,4 rúmm. Samtals: 118,7 ferm., 403,6 rúmm.
Gjald kr. 9.500 + 9.500
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102367 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023396