Fjölbýlishús
Skyggnisbraut 26-30 05.05.410.5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 10 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 772
25. mars, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt fjölbýlishús, tvær byggingar 5 og 6 hæðir með 38 íbúðum á opnum bílakjallara fyrir 28 bíla á lóð nr. 26-30 við Skyggnisbraut.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 28. febrúar 2014 fylgir erindinu.
Stærð: Kjallari 266,7 ferm., 1. hæð 870,1 ferm., 2. hæð, 3. og 4. hæð 850,8 ferm., 5. hæð 605,7 ferm., 6. hæð 209,6 ferm.
Samtals: 4.504,5 ferm., 13.581,2 rúmm.
Bílgeymsla, B-rými 842,5 ferm., 2.544,9 rúmm.
Gjald kr. 9.500
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

113 Reykjavík
Landnúmer: 219633 → skrá.is
Hnitnúmer: 10095750