Hótel
Austurstræti 16 01.14.050.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 10 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 771
18. mars, 2014
Frestað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta skrifstofum á efri hæðum hússins í hótel með 45 herbergjum fyrir 90 gesti og innrétta gestamóttöku á 1. hæð, sbr. fyrirspurn BN045512, lækka gólf í kjallara að hluta og innrétta þar stoðrými með geymslum, aðstöðu starfsfólks og sorpgeymslu og bæta við lyftu í húsi á lóð nr. 16 við Austurstræti.
Meðfylgjandi er samanburðarsett arkitekts, bréf arkitekts dags. 4.2. 2014 og annað dags. 11.2. 2014, bréf til Minjastofnunar Íslands/Húsafriðunarnefndar dags. 7.2. 2014, umsögn verkfræðistofunnar Ferils um breytingar á burðarvirki dags. 4.2. 2014, hönnunarforsendur Ferils dags. í janúar 2014, forsendur fyrir rafkerfum frá Verkhönnun ódagsett, yfirlýsing Minjastofnunar Íslands vegna friðunar, hljóðvistargreinargerð dags. febrúar 2014, brunahönnun dags. janúar 2014, bréf Minjastofnunar Íslands dags. 19. febrúar 2014, bréf Minjasafns Reykjavíkur dags. 27.2. 2014, greinargerð vegna utanhússviðgerða dags. 27.2. 2014, bréf arkitekts dags. 4.3. 2014, umsögn skipulagsfulltrúa fylgir fyrirspurn BN045512 sem var afgreidd jákvætt 7.2. 2013.
Gjald kr. 9.500
Svar

Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100861 → skrá.is
Hnitnúmer: 10001118