Hótel
Hverfisgata 32 01.17.110.3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 10 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 772
25. mars, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja 2. áfanga hótels á Hljómalindareit, staðsteypt hús á fimm hæðum sem í verða 64 herbergi, fjórar íbúðir, veitingasalur, eldhús og verslunarrými á aðgönguhæðum húsa á lóðum nr. 32 við Hverfisgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. janúar 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. febrúar 2014.
Áður samþykkt niðurrif skv. byggingarleyfi nr. BN046649: 476,2 ferm.
Nýbygging: Kjallari 260,2 ferm., 1., 2., 3. og 4. hæð 263,7 ferm., 5. hæð 223,0 ferm.
Samtals nýbygging: 1.514,7 ferm., 5.186,2 rúmm.
Stækkun: 1.038,5 ferm.
Gjald kr. 9.500
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkrfæðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101369 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022354