Aðstaða fyrir metanafgreiðslu
Álfheimar 49 01.43.800.4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 10 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 761
7. janúar, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að koma fyrir metanafgreiðslu sem samanstendur af tveimur 24 feta gámafletum klæddum með dúk á grind með metanhylkjum og gám sem inniheldur metanpressu innan steyptra veggja á þrjá vegu en metandælan verður austasta dælan undir skyggni við eldsneytisafgreiðslustöð á lóð nr. 49 við Álfheima.
Meðfylgjandi er brunahönnunarskýrsla frá Eflu dags. október 2013 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 13. desember 2013 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. nóvember 2013. Erindið var grenndarkynnt frá 13. nóvember til og með 11. desember 2013. Engar athugasemdir bárust.
Stærðir stækkun: mhl. 03, A og C rými, 90 ferm., 234 rúmm.
Stækkun mhl. 03: 15 ferm., 57 rúmm.
Gjald kr. 9.000 + 9.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

104 Reykjavík
Landnúmer: 105393 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006568