Veitingastaður í flokki 2
Vesturgata 3 01.13.610.2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 10 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 771
18. mars, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að breyta verslunarhúsnæði í veitingastað í flokki II í kjallara og á fyrstu hæð húss (matshl. 01) á lóðinni nr. 3 við Vesturgötu.
Skv. uppdráttum er hámarksgestafjöldi staðarins 155 manns.
Þinglýst samþykki meðeigenda dags. 13. mars 2014 fylgir erindinu. Umsagnir skipulagsfulltrúa dags. 15. október og 1. nóvember 2013 fylgja erindinu.
Bréf hönnuðar dags. 29. október 2013 og 27. febrúar 2014 fylgja erindinu ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. nóvember 2013.
Gjald kr. 9.000 + 9.500
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100528 → skrá.is
Hnitnúmer: 10013649