Veitingastaður stækkaður
Skólavörðustígur 40 01.18.140.4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 10 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 758
3. desember, 2013
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í vesturhluta fyrstu hæðar og í kjallara og breyta póstasetningu glugga, sjá BN045449, í íbúðar- og atvinnuhúsi á lóð nr. 40 við Skólavörðustíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 11. október 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. október 2013 og athugasemdum íbúa við Lokastíg og Skólavörðustíg.
Gjald kr. 9.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

Landnúmer: 101794 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017703