Hækka þak og setja kvisti
Nesvegur 44 01.51.711.8
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 9 árum síðan.
Málsaðilar
Haukur Ingi Guðnason
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 779
20. maí, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi, koma fyrir verönd (svölum) á austurhlið, hækka mæni um 50cm, bæta við kvisti, stækka kvist sem fyrir er og koma fyrir svölum á þakhæð einbýlishúss á lóð nr. 44 við Nesveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 20. september 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. september 2013 og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. maí 2014 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. maí 2014. Erindið var grenndarkynnt frá 16. apríl til og með 14. maí 2014. Engar athugasemdir bárust.
Jafnframt er erindi BN046165 dregið til baka.
Stækkun 60,9 ferm. og 116,1 rúmm.
Gjald kr. 9.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

107 Reykjavík
Landnúmer: 105917 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022678