Lagnakjallari
Blönduhlíð 9 01.70.421.6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 10 árum síðan.
Málsaðilar
Ásmundur Ísak Jónsson
Byggingarfulltrúi nr. 749
1. október, 2013
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja lagnakjallara undir bílgeymslu, sbr. erindi BN044180, ásamt tröppum með austurhlið við fjölbýlishúsið á lóð nr. 9 við Blönduhlíð.
Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda á teikningu ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. ágúst 2013 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. júlí 2013. Einnig fylgir samþykki nágranna í Blönduhlíð 7 og 11 og Drápuhlíð 14-16 og 18. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 27. september 2013 fylgir einnig með. Erindið var grenndarkynnt frá 21. ágúst til og með 18. september 2013, Engar athugasemdir bárust.
Stærðir stækkun: 35,8 ferm. og 84,8 rúmm. brúttó.
Gjald kr. 9.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

105 Reykjavík
Landnúmer: 107096 → skrá.is
Hnitnúmer: 10008329