Veitingahús
Geirsgata 3 01.11.730.5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 10 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 748
24. september, 2013
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta nýtingu verbúðar í veitingahús í flokki II fyrir 150 gesti, 92 inni, 58 úti, breyta gluggum og hurðum, op í steinsteypta plötu stækkað, reykháfur lagfærður og gerður nýtanlegur fyrir arinstæði og útigrill. Einnig er sótt um tímabundna opnun frá 2. hæð Geirsgötu nr. 3 inn í hús á lóð nr. 3A-B í húsinu á lóðinni nr. 3 við Geirsgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. ágúst 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. sama dag.
Umsögn frá burðarvirksihönnuði dags. 13. ágúst 2013 og samþykki Faxaflóahafna og Þinglýst yfirlýsing um flótaleið dags. 10 sept. 2013 fylgir.
Gjald kr. 9.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Allur frágangur á svæði útiveitinga er á ábyrgð umsækjanda og ber honum að sjá til þess að allt rusl sé þrifið jafnóðum og fjarlægt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100085 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023722