Hækkun á risi
Víðimelur 62 01.52.400.3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 10 árum síðan.
Málsaðilar
Ari Ingimundarson
Byggingarfulltrúi nr. 749
1. október, 2013
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að hækka ris, byggja tvo kvisti og svalir á fjölbýlishús á lóð nr. 62 við Víðimel. Erindi var grenndarkynnt frá 28. ágúst til og með 25. september 2013 en þar sem samþykki hagsmunaaðila barst dags. 3. september 2013 er erindið nú lagt fram að nýju.
Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda á lóð, og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. júní 2013, einnig umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. júní 2013, útskrift úr gerðabók skipulagsfulltrúa dags 19. júlí 2013 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. júlí 2013 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 20. september 2013
Stækkun: 2,6 ferm., 48 rúmm.
Gjald kr. 9.000 + 9.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

107 Reykjavík
Landnúmer: 106000 → skrá.is
Hnitnúmer: 10014584